MR nördarnir

Verið margfalt velkomin :)

13.07.2008 02:52:20 / Rutta

Davíðsson

Velkominn í heiminn litli gaur :d

Til hamingju Magga og Davíð!

Hlakka til að hitta snáðann!!!




» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 16:01:08 / Magga

Fréttir eða ekki

Bara að láta vita að ég er á lífi.

Vá, ég ætlaði alltaf að skrifa eitthvað hingað inn um hvernig gengi og svona en skólinn og þreytan tóku bara allan tímann minn þessa önnina.

Ég skilaði inn BS verkefninu fyrir viku síðan. Er núna á fullu að læra fyrir próf í næstu viku og þegar það er búið eru 3 vikur í vörnina/munnlega prófið fyrir BS verkefnið. Svo get ég vonandi eitthvað hvílt mig á skóla og snúið mér að alvörunni því settur dagur (26. júní) er viku eftir það próf :s Geri ráð fyrir að við búum til síðu bráðlega, sendi ykkur þá slóð og lykilorð :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 21:48:02 / Rutta

Nostalgia

hæ stelpur... ég var að skella nokkrum Krítarmyndum inná facebook.
Var sko að skanna 8)

tékkið á því.. ef þið eigið eitthvað megið þið gjarna deila því :D



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 14:20:32 / Rutta

Jólahittingur

hæ stelpur!!

Á morgun, föstudaginn 21. des, verður jólakaffi hjá Rut!!!

Það verður kl. 15, sem sagt í kaffitímanum. Megið koma svangar því það verða veigar í boði.

Sléttahraun 23... you know itt...

Neyðumst til að hafa þetta stutt vegna þess að það eru allir svo uppteknir að undirbúa jólin. En það er auðvitað fyrir öllu að hittast amk smá :)  

 

Látið vita á vefnum eða í sms ef þið komið. Annars mun ég hringja í kvöld í þær sem ég hef ekki heyrt í.

kk. rut


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 21:28:30 / Rutta

Styttist

 Sælar dömur.

Hvað er málið, á ekkert að láta vita af sér?

Viljiði spá, það eru 14 dagar til jóla, desember bara flýgur frá manni :P
Eruði ekki komnar í jólagírinn? 
Ég er búin að kaupa næstum allar gjafir og skreyta heima. Á næstu dögum mun ég baka smákökur og kannski smá vandræði while I am at it :)

En elsku vinir, hvað á að gera um jólin? Verður fólk almennt á Íslandi eða hvernig er planið? Mig langar svo til þess að hitta ykkur.
Látið vita af ykkur!!! Ég veit að Vaka kemur heim 16. des. Hvað með þig Magga? Svo vil ég endilega fara að heyra frá Ásu!!!
Allavegana, ef það er hægt væri ég nebbla alveg til í að bjóða ykkur í kaffi fyrir jól, smákökur og heitt kakó???? einhver????

Látið í ykkur heyra;)
RUT

 Gif animal Images


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 20:36:48 / Magga

Og núna ég..

Vá ég hafði ekki kíkt hingað inn í smá tíma. En sniðug hugmynd. Nú kemur mitt ;)

1. Ég er nýflutt inn á Øresundskollegiet, stærsta kollegi á Norðurlöndum. Smá viðbrigði að flytja inn í 40 m2 íbúð í íslendinga og færeyinga gettói eftir að hafa búið í 80 m2 á Vesterbro, í göngufæri frá miðbænum. En okkur líður alveg ótrúlega vel hérna, enda fín aðstaða á svona stóru kollegi, hér er t.d. líka líkamsræktarsalur.

2. Ég er alveg búin að skipta úr HÍ yfir í KU og stefni á að gera BS verkefnið mitt næsta vor.

3. Ég fékk pönnukökupönnu í afmælisgjöf og ætla að læra listina að búa til pönnukökur einhverntímann á næstunni (hef hingað til ekki verið neitt sérstaklega góð í að búa til heilar pönnukökur, meira svona artí fartí með "rönum")

4. Fjölskyldan okkar er nýbúin að stækka, nú erum við 6, við tvö og svo 4 pottaplöntur. Vonandi helst það þannig í einhvern tíma. Það fór ekki vel í fyrstu íbúðinni okkar, skiluðum henni einum ketti og nokkrum pottaplöntum fátækari, ó boj ó boj :s

5. Ég borða oft kebab og hef aldrei fengið matareitrun. Fæ mér ýmist durum kebab eða kylling i pitabrød. Þegar við bjuggum á Oehlenschlægersgade fórum við yfirleitt á Kebabistan. Það var mjög gott en stundum mjög fróðlegt líka. Einu sinni fór Dabbi þangað með Stebba og Dagsa. Dabbi og Stebbi pöntuðu sér á meðan Dagsi skrapp út í hraðbanka. Þeir báðu um Durum. Afgreiðslumaðurinn svaraði: No Durum. Það fannst þeim skrítið svo þeir endurtóku bara beiðnina og afgreiðsumaðurinn endurtók: no durum. Þeir fengu sér þá bara kylling i pitabrød. Þá kom Dagsi inn og bað um Durum og afgreiðslumaðurinn byrjaði strax á að útbúa duruminn hans. Bara svona smá dæmi um eitt af mörgum yndislegum atvikum á Kebabistan. Mæli eindregið með honum :)

 

Annars ætla ég bara að benda á að nú eigum við svefnsófa og ef fólk vill meira privacy eru gestaherbergi í blokkinni okkar, ca.1200 ísl.kr.nóttin (þá gestaherbergin en ekki sófinn). Og að gefnu tilefni þá er ég komin með nýtt e-mail, margret.jakobsdottir(hjá)gmail(punktur)com


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 21:41:21 / Maja

blísjahh!!!

ok 5 atriði here goes

1. ég er að krukka í líkum 2x3 tíma í viku og finnst það ekkert ógeðslegt heldur bara gaman

2. ég er byrjuð að æfa Kung Fu 2-3 sinnum í viku er soldið utanveltu af því ég skil svo litla ungversku en þetta reddast

3. ég spila FÓTBOLTA á sunnudögum

4. allar aðrar stundir vikunnar sem ekki fara í að sofa, éta, æfa, og MÆTA Í TÍMA eyði ég uppi í skóla að læra

5. Akkúrrat núna ligg ég uppi í rúmi VEIK af OFÁTI.... no joke er búin að æla og allt. Já krakkar mínir borgar sig ekki að éta af græðgi

þá er ég búin ...NÆSTI


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 14:56:30 / Dröfn

Góð hugmynd Rut :D

Hér koma fréttir af Dröfn smöfn: 

  1. Fyrsta fréttin af mér er sú að við Siggi erum flutt á stúdentagarðana á gamla varnasvæðinu í KEFLAVÍK - hvorki meira né minna! Búum hér í 55fm holu en höfum það voða fínt því hér er allt til alls. Reyndar erum við ekki nógu dugleg að nýta okkur líkamsræktaraðstöðuna sem er á jarðhæðinni í húsinu okkar en er það aðallega vegna anna!
  2. Ég er að reyna að klára verkfræðina... er í 5 fögum nú fyrir jól og 4 eftir jól og ef allt gengur upp útskrifast ég næsta vor - eins og ég var búin að plana :D Er líka í tónó að reyna að blása eitthvað en þar sem tónlistarskólinn er mjög aftarlega á forgangslista gengur það hægt - en ég er þó ekki hætt ennþá!
  3. Við fórum í þessa geggjuðu ferð í sumar til Dubai, Singapore og Thailands og get ég alveg mælt með heimsókn til Dubai og Singapore. Ég varð aðeins svekkt með Thailand því ég hafði alltaf ímyndað mér Thailand með hvítar strendur og sægrænan sjó - en neinei... strendurnar voru brúnar og skítugar og sjórinn var það líka!!!! Fer frekar til Krítar heldur en til Thailands ef mig langar að liggja á strönd! En ég ætla pottþétt aftur til Dubai... kannski eftir svona 4-5ár - draumur byggingarverkfræðingsins ;D
  4. Næsta ferð er plönuð fyrstu helgina í nóvember en þá ætlar vinnan hans Sigga (Fjölhönnun) að fara í árshátíðarferð til Berlínar. Það verður reyndar bara stutt stopp en ætlunin er að djamma feitt :D og reyna að versla svolítið - helst allar jólagjafirnar!
  5. Hmmm... hvað get ég sagt ykkur fleira? Eina sem mér dettur í hug sem þið kannski vissuð ekki er að ég fótbrotnaði síðasta vor! Smá lífsreynsla að vera í gipsi og á hækjum - aldrei prófað það fyrr! Á þessu uppátæki lærði ég í það minnsta það að maður á ekki að flýta sér niður stiga og skrifa sms í leiðinni! :haha:

Þá eru bara eftir.... Maja, Vaka, Magga og Ása - jú kan dú it 8)

Ps. Til hamingju með afmælið Magga 15.sept - betra seint en aldrei :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 22:48:40 / Rutta

hoola

hæhæ

Ég hef ekki heyrt í sumum ykkar í ár og daga og hef ekki hugmynd hvað hefur á daga ykkar drifið... veit til að mynda ekkert hvar þið búið margar hverjar eða hvað þið eruð að gera :(

Þess vegna eiga ALLAR að skrifa, hvort sem það er í komment eða færsla, 5 atriði um sjálfa sig og hvað er að gerast með ykkur.

-Ég og Kalli búum enn í Hafnarfirðinum í íbúðinní okkar.
-Það er einn fjölskyldumeðlimur búinn að bætast við. Það er Hneta, lítil tjúa tík sem er 5 mánaða. Okkur finnst frábært að hafa hana og hún er mjög góð.
-Ég er á 3. ári í læknisfræði sem þið vissuð nú kannski allar. Ég er að fara í próf í okt. en ég fer ekki í neina jólapróf.. jibbý.. Jólahittingur? einhver??
- Auk skólans er ég í 10% vinnu á Hrafnistu í Hfj. en það er 4. hver helgi. Mér finnst mjög gaman að vinna þar. Ég tek líka aukavaktir þar ef þarf. Ég er eiginlega ekki lengur að vinna í Læknahúsinu. Tek bara vaktir þar ef það bráðnauðsynlega þarf sem er mjög sjaldan. Vann þar reyndar í mánuð í sumar...
-Ég er því miður ekki eins dugleg að læra og ég vildi. Svona er ég bara:whut: Lofa bót og betrun enda fer að koma að prófum... Ég fer í ræktina á þri. og fim. Loksins farin að hreyfa á mér rassgatið. Annars er ekki mikið um hversdagslífið að segja. Maður verður náttla að þrífa hér heima, elda og þvo. Maður fer þó endrum og eins í bíó hér og kaffihús þar, út að éta og svo eru alltaf einhverjir atburðir. Ég er alltaf með mína miklu útlandaþrá og er ég strax farin að plana næstu ferð. Hún verður farin ef ég fæ frí í skólanum. Meira um að seinna.

Jæja, nú þið.... Maja, Vaka, Dröfn, Magga og Ása   DO ITT allar!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 21:18:53 / Rutta

halló

Maja and Rut were here...


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 10:13:21 / Dröfn

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....

...hún á afmæli hún Ru-ut, hún á afmæli í dag!

 Jej vei og jíbbí jej!

 

Til hamingju með daginn snúllan þín...


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 12:19:47 / Dröfn

Dubai - Singapore - Thailand

Hi hi  

Tar sem eg er svo leleg ad skrifa postkort sendi eg ykkur bara kvedju her! Erum buin ad fara til Dubai og Singapore og erum nuna i Thailandi. Er strax komin med fjogur bit og tvo eru a laerinu a mer og liggja saman tannig ad tad litur ut eins og ad eg se med brjost a laerinu!!! Skitt!

En her er agaett ad vera... brann samt "pinu" i solbadinu adan... enda sofnadi eg!  Mer finnst samt thailand buid ad vera sist af tessum stodum. Mer leid bara illa i rutunni a leidinni hingad en folk byr i 4 barujarnsplotum undir mislaegum gatnamotum :( Tad sem bjargar tessu er ad 650 ml flaska af bjor kostar bara 70 kr isl :D

Erum buin ad setja inn svolitid af myndum a fotki.is/drofnogsiggi  tid getid kikt... held ad eg hafi gleymt ad setja lykilord a nyjasta albumid en tar er lika mest af myndunum. Annars er tetta bara sma urval sem vid settum a netid... getid fengid ad sja meira tegar vid komum heim... komum 7. juni :)

 Bestu kvedjur a fron

Drofn


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:24:01 / Rutta

..

Búin að henda inn myndunum frá því við Stella vorum í heimsókn hjá Maju og Vöku!

Tékkið hér: www.rutg.shutterfly.com

Lykilorðið er nafnið á voffanum mínum með íslenskum stöfum og byrjar á stórum staf.

En allir að svara Dröfn varðandi útilegu í sumar hér fyrir neðan.

Kv. RUT


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 20:39:14 / Dröfn

Gleðilegt sumar.......

Er komin í prófundirbúning og þá finn ég upp á ótrúlegustu hlutum til að losna við að læra!!!

Ákvað samt að blogga pínu þar sem að engin var búin að segja...

GLEÐILEGT SUMAR :D

En að vísu er ég, ótrúlega en satt, pínu ánægð að vera í komin í próftörnina.. fyrir því liggja tvær ástæður:

  1. Þá er orðið mjög stutt í útskriftarferðina til Dubai, Singapore og Thailands.
  2. Og þá get ég bara verið heima (nema þegar ég fer í próf!).... er nebbla fótbrotin og á hækjum!

Jájá.. lennti í svokölluðu sms-slysi! Var að flýta mér niður stigann og var að reyna að multi-taska og var því að skrifa sms um leið, hélt að ég væri komin alveg niður - en átti eina tröppu eftir! Kuðlaði löppinni einhvern veginn undir mig svo að eitt bein í ristinni fór í tvennt! Þið læknanemar geti kannski sagt mér hvað beinið heitir? Frekar langt bein sem liggur frá litlu tá í átt að ökla. Þarf að vera í gipsi í eina viku í viðbót og á hækjum í tvær vikur til viðbótar eftir það!!! Er samt alveg orðin massa góð á hækjunum :D

En viljið þið koma með mér í útilegu í sumar? Hvert eigum við að fara??? Eigum við að reyna að finna helgi? Eftir 7. júní... því þá kem ég heim.

En jæja... helv*2!#o% umhverfisverkfræðin lærir sig ekki sjálf! Verð víst að reyna að hafa einhvern metnað!

Látið heyra í ykkur... hlakka svo til sumarsins ;)

kv Dröfn


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 16:48:07 / Rutta

Komin heim

hellú

Þá er fjörið búið og rúmlega mánuður af lærdómi bíður... ojojoj...

En það var mjög gaman að hitta stelpurnar og sjá hvernig þær hafa það þarna úti.
Við Stella eyddum öllum 1. apríl í flug og þannig drasl og þegar við lentum í Buda fórum við beint uppá hótel að lúlla okkur. Daginn eftir var svo farið að versla og kom Vaka frá Debó og hitti okkur í einu mollinu. Hún gisti á hótelherberginu okkar og vorum við því alls 2 heila daga í Budapest til að byrja með og var Vaka mjög dugleg að sýna okkur borgina.
Kvöldið á öðrum degi fórum við þá til Debrechen með lestinni sem við vorum by the way næstum búnar að missa af!!! Vaka hljóp og stoppaði lestina á meðan við Stella hlupum eins og vitlausar með ferðatöskurnar á hælunum... vá hvað mig langaði bara í mömmu mína.. ekkert smá stressandi og ég fékk astmakast af öllun hlaupunum. EN við hlógum svo bara af þessu.
Við komum nokkuð seint til Debó og þar beið Maja okkar á náttfötunum og knúslaði okkur.
Við vorum í Debrechen frá kvöldi þri. til morgun mán. og náðum því fimm heilum dögum þar. Við gerðum ýmislegt með stelpunum, skoðuðum bæinn og versluðum smá, fórum á flotta veitingastaði, í pool og keilu, í dýragarð, í fótsnyrtingu og svo í nudd. En auk þess lærðum við líka smá. Ég ætlaði með í anatomiu að kryfja og pota en var veik svo ég gat ekki:(
Á páskadag eldaði Maja dýrindis páskalamb sem ég kom með frá Íslandi. Stella færði okkur öllum svo páskaegg þannig að páskarnir voru haldnir heilagir:D
Ég, Maja, Stella og Maggi fórum svo til Budapest saman á mánudeginum. Við ætluðum að versla smá en það var allt lokað enda annar í páskum svo við röltum bara um og væfluðumst. Enduðum svo kvöldið á frábærri Dónó kvöldsiglingu með dinner og öllu, allt upplýst. Mæli með svoleiðis ef þið eigið leið um Budapest. Settumst svo smá á kaffíshús áður en við fórum upp á hótel aftur og þá var komið að því að kveðja.
Við Stella gátum nú lítið sofið á hótelinu, þurftum að vakna kl. 4,30 til þess að fara upp á völl. Flugum svo til London og sváfum alla leiðina enda þurftum á því að halda. Við eyddum svo öllum þri. í London þar sem við versluðum og fengum okkur 3ja rétta pizza hut máltíð. Enduðum svo ferðina á smá skoðunarferð um London. Ég sýndi Stellu Big Ben og útsýnið yfir brúna hjá honum. Flott að sjá í myrkri. Ætlaði svo að fara með hana að skoða Buckingham palace en það var svo dimmt og scary að við þorðum ekki að labba í gegnum Green park:lol:
Eftir að við lentum á Íslandi þurftum við báðar að fara í tíma, sem sagt skólinn tekinn strax við með skell.

Frábær ferð í alla staði.
Takk fyrir mig Maja og Vaka! luv and kisses

RUT

ps. myndir inná myndasíðuna mína von bráðar


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Myndir...vííí!!!